Skilmálar og skilyrði

Upplýsingar um félagið:

Íslenski fjárhundurinn, félag (DÍF)
kt. 660499-3349
Sími : 846 0895 / 899 7879
Netfang : stjorn@dif.is

Almennt
DÍF áskilur sér rétt til að hætta við pantanir, t.d. vegna rangra verðupplýsinga og einnig að breyta verðum eða hætta að bjóða upp á vörutegundir fyrirvaralaust. Áskilinn er réttur til að staðfesta pantanir símleiðis.

Afhending vöru
Pantanir sem berast fyrir hádegi eru að jafnaði afgreiddar næstu virka daga

Skilafrestur og endurgreiðsluréttur
Kaupandi hefur 14 daga til að hætta við kaupin að því tilskildu að hann hafi ekki notað vöruna, henni sé skilað í góðu lagi í óuppteknum upprunalegum umbúðum. Ef vara er innsigluð má ekki rjúfa innsiglið. Fresturinn byrjar að líða þegar varan er afhent skráðum viðtakanda. Kvittun fyrir vörukaupunum þarf að fylgja með. Endurgreiðsla er framkvæmd að fullu ef ofangreind skilyrði eru uppfyllt og eftir að varan er móttekin. Flutnings- og póstburðargjöld eru ekki endurgreidd. Vinsamlegast hafið samband við DÍFmeð spurningar.

Verð
Vinsamlegast athugið að verð á netinu getur breyst án fyrirvara.

Skattar og gjöld
Öll verð í netversluninni eru með VSK og reikningar eru gefnir út með VSK.

Trúnaður
Seljandi heitir kaupanda fullum trúnaði um allar þær upplýsingar sem kaupandi gefur upp í tengslum við viðskiptin. Upplýsingar verða ekki afhentar þriðja aðila undir neinum kringumstæðum.

Gölluð vara
Komi upp galli í vöru gilda almenn lög um neytendakaup nr. 48/2003 athugið að tilkynna þarf um galla innan þess tímaramma sem lög gera ráð fyrir.